
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Efling – stéttarfélag hefur vísað kjaradeilu félagsmanna sinna sem starfa hjá fyrirtækjum innan Samtaka sjálfstæðra skóla (SSSK) gagnvart Samtökum atvinnulífsins (SA) til ríkissáttasemjara. Stéttarfélagið sér ekki aðra leið færa til að koma gangi á viðræðurnar eftir að hafa ítrekað óskað eftir því við SA að haldinn verði samningafundur í deilunni.Samningar hátt í 300 félagsmanna Eflingar starfandi í skólum og leikskólum innan SSSK gagnvart SA hafa verið lausir frá því í mars í fyrra. Efling leit svo á að hægt væri að hefja formlegt samningaferli í kjölfar staðfestingar SA þess efnis í lok febrúar. Sú varð ekki raunin því að SA hefur ekki svarað ítrekuðum óskum stéttarfélagsins um viðræður frá því í apríl.Með hliðsjón af því hefur Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, óskað eftir því að ríkissáttasemjari taki yfir stjórn viðræðnanna. „Með þessu skrefi vonumst við til að geta hafið eiginlegar samningaviðræður við SA og þar með fært félagsmönnum okkar innan SSSK sambærilegar kjarabætur og félagsmönnum Eflingar hjá Reykjavíkurborg og öðrum sveitarfélögum í nágrenninu. Þessi hópur vinnur sambærileg störf á sama vinnusvæði og því er ekki annað réttlætanlegt en að hann beri það sama úr býtum og þessir hópar,“ segir Sólveig Anna. „Löngu eru orðið tímabært að þessar viðræður séu hafnar af alvöru.“

