Kjarasamningur Eflingar við Samband íslenskra sveitarfélaga samþykktur af félagsmönnum

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

22-05-20

deila

Félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Hveragerði og Ölfus hafa greitt atkvæði um kjarasamning sem undirritaður var 10. maí.Af þeim 118 sem greiddu atkvæði um samninginn sögðu 117 eða 99,15% já. Aðeins einn greiddi atkvæði gegna samningnum eða 0.85%. Enginn tók ekki afstöðu.Atkvæðagreiðslan var rafræn og stóð frá hádegi mánudaginn 18. maí til hádegis í dag föstudaginn 22. maí.„Með þessum samningi náðust sambærilegar kjarabætur fyrir félagsmenn okkar sem starfa hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Hveragerði og Ölfus og í samningum Eflingar við Rvk, ríki og Faxaflóahafnir. Við hljótum að fagna því og ég er stolt af staðfestu félagsmanna okkar í verkfallsaðgerðum á erfiðum tímum þar sem samstaðan og baráttuviljinn skilaði þeim sanngjarnri leiðréttingu og betri kjörum” segir Sólveig Anna Jónsdóttir.