Kjarasamningur samþykktur með miklum meirihluta

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

20-03-24

deila

Atkvæðagreiðslu meðal félagsfólks Eflingar um nýjan kjarasamning við SA er lokið. Samningurinn var samþykktur með yfir þremur fjórðu hlutum greiddra atkvæða, og kjörsókn stórjókst miðað við atkvæðagreiðsluna 2019.

Atkvæði féllu þannig:

  • sögðu 2.782 eða 76% þeirra sem greiddu atkvæði.
  • Nei sögðu 493 eða 13% þeirra sem greiddu atkvæði.
  • 377 eða 10% skiluðu auðu.

Af þeim 20.326 Eflingarfélögum sem voru á kjörskrá nýttu 3.652 atkvæðisrétt sinn eða rétt tæp 18%. Til samanburðar var kjörsókn rúm 10% í sambærilegri atkvæðagreiðslu um Lífskjarasamningana árið 2019.

„Ég óska félagsfólki til hamingju með nýjan kjarasamning og ég óska líka samninganefnd Eflingar til hamingju með að hann hafi verið samþykktur með svo góðum meirihluta. Í því felst mikil og dýrmæt traustsyfirlýsing til félagsfólksins sem sigldi þessum kjaraviðræðum í höfn. Ég fagna því líka að við höfum aukið kjörsókn um hátt í 80% miðað við atkvæðagreiðsluna 2019, sem að mínum dómi er til marks um árangur okkar í að efla þátttöku í félaginu á síðustu árum,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

Efling hvetur félagsfólk til að kynna sér vel allar breytingar samningsins, sérstaklega launahækkanir. Félagsfólk er er jafnframt hvatt til að fylgjast með því að launahækkanir skili sér við næstu launagreiðslu. Hækkanir gilda frá 1. febrúar og á því næsta launagreiðsla að fela í sér afturvirkni vegna febrúarmánaðar.