Kjarasamningur SGS er ófullnægjandi fyrir verkafólk á Höfuðborgarsvæðinu

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

09-12-22

deila

Stjórn Eflingar – stéttarfélags samþykkti í dag eftirfarandi ályktun:

Launahækkanir í samningi Starfsgreinasambandsins (SGS) eru að mati Eflingar ófullnægjandi fyrir verkafólk á Höfuðborgarsvæðinu og suðvesturhorninu.

Kaupmáttarrýrnun ársins 2022 er óbætt í samningnum. Hann mun auk þess ekki skila sambærilegri kaupmáttaraukningu á næsta ári og Lífskjarasamningurinn gerði. Er hér miðað við fyrirliggjandi verðbólguspár (um 6%).

Þá er ekki tekið tillit til þess að hagvöxtur var einungis um 2,4% við undirritun Lífskjarasamningsins árið 2019. Hagvöxtur er nú miklu hærri eða nálægt 7%. Miklu meira er því til skiptanna nú. Launafólk á að fá sinn hlut af þessum mikla hagvexti.

Kauphækkun í SGS-samningnum er mest í þeim hópum verkafólks sem hefur lengstan starfsaldur hjá sama fyrirtæki. Eflingarfélagar eru almennt með styttri starfsaldur hjá sama fyrirtæki og fengju því minna út úr launatöflu SGS en verkafólk á landsbyggðinni. Þá virðist SGS-samningurinn vera ásættanlegri fyrir fiskvinnslufólk en aðra, en sá hópur er að mestu leyti á landsbyggðinni en hverfandi hluti Eflingar-fólks á suðvestur horninu.

Þá er framfærslukostnaður mun meiri á höfuðborgarsvæðinu, einkum húsnæðiskostnaður. Nýr kjarasamningur fyrir Eflingarfélaga þarf að taka tillit til þessara atriða.

——–

Sjá einnig nánari umfjöllun um SGS-samninginn og samanburð við Lífskjarasamninginn í grein Stefáns Ólafssonar.