
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Efling heldur kótilettukvöld fyrir félagsmenn hjá öryggisfyrirtækjum þann 17. nóvember. Dagskrá kvöldsins verður blanda af gríni, gítar, góðum mat og norrænni verkalýðsbaráttu. Veislustjórn verður í höndum
Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar. Uppistandarinn
Andri Ívars
sér um grínið og mun leika ljúfa tóna á gítar af sinni alkunnu snilld.
Góðir gestir segja frá störfum og kjarabaráttu öryggisvarða í Noregi
Stian Tveitan er aðaltrúnaðarmaður Norsk Arbeidsmandsforbund hjá Securitas í Noregi og situr jafnframt í stjórn fyrirtækisins fyrir hönd starfsmanna. Til viðbótar við þetta er hann
formaður evrópska samstarfsráðsins hjá Securitas
sem kemur fram fyrir hönd starfsfólks Securitas í þeim löndum ESB og EES þar sem fyrirtækið starfar. Stian mun ræða um þátttöku sína í kjarabaráttu öryggisvarða og hvað hefur áunnist á undanförnum árum í Noregi.
Frank Aamo starfar sem öryggisvörður á flugvellinum í Þrándheimi og er jafnframt
aðaltrúnaðarmaður Norsk Arbeidsmandsforbund hjá Avarn Security í Noregi. Avarn er ásamt Securitas annað af tveimur stærstu öryggisfyrirtækjunum þar í landi. Frank mun segja frá störfum sínum sem aðaltrúnaðarmaður og því mikilvæga hlutverki sem virkir félagsmenn gegna í kjarasamningsgerð við stór fyrirtæki eins og Avarn.
Matseðill
Dásamlegar lambakótilettur með öllu tilheyrandi meðlæti og marenstertu með berjum í eftirrétt.
Miðasala í fullum gangi!
Miðasala er á Mínum síðum Eflingar undir flipanum vefverslun.
Miðinn kostar 1500 kr.
Hámark 2 miðar fyrir hvern félagsmann. Tilvalið að bjóða vinnufélaga.
Hvenær: 17. nóvember 2026, kl. 18. (Húsið opnar 17:30)
Hvar:
Félagsheimili Eflingar, 4. hæð, Guðrúnartúni 1.
