Krafa um sömu leiðréttingar og aðrir!!!

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

20-06-14

deila

Enn ósamið við Samband íslenskra sveitarfélaga

Hægt hefur miðað í viðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga en kjarasamningurinn rann út 1. maí síðast liðinn. Líkt og í fyrri samningum hefur Efling farið í sameiginlegar kjaraviðræður með Hlíf og VSFK en tæplega 900 félagsmenn starfa hjá þeim sveitarfélögum sem þessi stéttarfélög eiga aðild að.

Það er alveg ljóst að við getum ekki við það unað að Sambandið gangi frá hverjum kjarasamningnum á fætur öðrum á allt öðrum nótum en þeir kjarasamningar sem skrifað var undir í upphafi árs en ætli síðan að hrökkva í bakkgír gagnvart hópum Flóafélaganna. Efling, Hlíf og VSFK gera  kröfu um sambærilegar launahækkanir og aðrir viðsemjendur Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa fengið svo sem grunnskólakennarar, BHM og nú síðast leikskólakennarar.