Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Samninganefnd Starfsgreinasambandsins (SGS) hefur samþykkt kröfugerð á hendur stjórnvöldum og atvinnurekendum fyrir komandi kjaraviðræður. Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur samningsumboð 19 verkalýðsfélaga innan SGS, þar á meðal Eflingar en samninganefnd Eflingar samþykkti að fela samninganefnd SGS umboð sitt til samningsgerðar.Helsta krafan gagnvart Samtökum atvinnulífsins þegar kemur að launaliðnum er sú að lágmarkslaun verði 425.000 krónur í lok samningstímans að því gefnu að ekki komi til umtalsverðra skattkerfisbreytinga.Gagnvart stjórnvöldum er þess m.a. krafist að lágmarkslaun verði skattlaus og að skatta- og bótakerfið verið enduskoðað. Þá verði gert þjóðarátak í húsnæðismálum.Kröfugerð Starfsgreinasamnbandsins á hendur Samtökum atvinnulífsins í heild sinni má sjá hérKröfugerð Starfsgreinasambandsins á hendur stjórnvöldum í heild sinni má sjá hér

