Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Kynningarfundir vegna samninganna!
Eflingarfélagar hjá Reykjavíkurborg
Miðvikudaginn 3. des. kl. 14.30 og kl. 17.30 og mánudaginn 8. des. kl. 17.30 verða haldnir kynningarfundir á Grand Hótel við Sigtún.
Eflingarfélagar hjá Kópavogsbæ
Fimmtudaginn 4. desember verða haldnir kynningarfundir í áhaldahúsi Kópavogs kl. 12.30 og í íþróttahúsinu í Smáranum, Dalsmára 5 kl. 14.00.
Eflingarfélagar hjá Seltjarnarnesbæ
Fimmtudaginn 4. des verða haldnir kynningarfundir í Mýrarhúsaskóla eldri við Nesveg kl. 08.30 og samkomusalnum í Mýrarhúsaskóla kl. 09.30.
Eflingarfélagar hjá Mosfellsbæ
Fimmtudaginn 4. des verður haldinn kynningarfundur í Lágafellsskóla kl. 20:00.
Dagskrá allra fundana er eftirfarandi:
Kynning á nýju samkomulagi um breytingu og framlengingu á kjarasamningi Eflingar-stéttarfélags og þeirra viðsemjenda sem við á hverju sinni. Atkvæðagreiðsla um samkomulagið verður í lok fundanna. Þeir sem ekki komast á kynningarfundina geta greitt atkvæði um samkomulagið á skrifstofu Eflingar-stéttarfélags Sætúni 1. Þar verður opinn kjörfundur frá þriðjudegi 9/12 kl. 09.00 til kl. 12.00 föstudaginn 12/12.

