Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Framboðsfundur á vegum stéttarfélaga í Reykjavík, fimmtudaginn 24. maí kl. 17 -19. Efling, VR, SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar — stærstu stéttarfélögin innan ASÍ og BSRB með starfssvæði í Reykjavík — efna til sameiginlegs opins fundar með fulltrúum framboðanna í Reykjavík, til að ræða um þau brýnu kjaramál sem brenna á starfsfólki Reykjavíkurborgar og öðru launafólki í borginni.Áherslumál fundarins eru launa- og húsnæðismál.
- Hvað getur Reykjavíkurborg gert til að bæta launakjör, auka jöfnuð og vinna gegn stéttskiptingu?
- Hvað getur Reykjavíkurborg gert til að bregðast við því óboðlega ástandi sem nú ríkir á leigumarkaði?
Fundurinn er opinn öllum en félögin hvetja félagsmenn sína sérstaklega til að mæta.Fundurinn verður haldinn á Grand hótel í salnum Hvammi, fimmtudaginn 24. maí kl. 17-19.Fundarstjórar
verða Sigmar Guðmundsson og Sigríður Dögg Auðunsdóttir.Fundinum verður streymt á Facebook síðu viðburðarins.Fundurinn verður textatúlkaður á ensku.Gos, kaffi og létt snarl í boði.

