Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Langflestir vilja sameiginlega launastefnu
Ný skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir ASÍ sýnir að 94% þeirra sem taka afstöðu vilja sambærilegar launahækkanir fyrir alla í komandi kjarasamningum á móti 6% sem vilja meiri launahækkanir til þeirra sem starfa í útflutningsgreinum. Þá vilja 48% að verkalýðshreyfingin leggi mesta áherslu á að tryggja kaupmátt launa í yfirstandandi kjaraviðræðum en 24% vilja að áherslan sé að tryggja atvinnuöryggi. Í báðum spurningum voru þeir aðeins spurðir sem eiga aðild að stéttarfélögum.
Fyrri spurningin hljóðaði þannig: Nú standa yfir viðræður um nýja kjarasamninga. Hvort ertu hlynntari því að verkalýðshreyfingin leggi áherslu á sambærilegar launahækkanir fyrir alla, eða meiri launahækkanir til þeirra sem starfa í útflutningsgreinunum, sem njóta nú góðs af gengi krónunnar? 94% sögðust vilja sambærilegar launahækkanir fyrir alla en 6% vildu að þeir fái meiri launahækkanir sem starfa í útflutningsgreinunum.
Hin spurningin snéri að því hvað verkalýðshreyfingin ætti að leggja mesta áherslu á í kjaraviðræðunum. 19% vildu beinar launahækkanir, 48% að kaupmáttur yrði tryggður og 24% að áherslan væri á atvinnuöryggi.
Félagsvísindastofnun Háskólans gerði skoðanakönnunina fyrir Alþýðusamband Íslands. Úrtakið var 1200 manna slembiúrtak úr þjóðskrá, 18 ára og eldri. Könnunin var gerð í gegnum síma dagana 5.-16. febrúar 2011. Nettósvarhlutfall var 62,9%.
Niðurstöðurnar má skoða betur á vef ASÍ www.asi.is

