Laun hækka frá 1. júní

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

19-05-10

deila

Frá 1. júní 2010 hækka laun á almennum vinnumarkaði um 2,5% taki laun ekki mið af kauptöxtum.  En kauptaxtar hækka þá um 6.500 kr.

Hér er um að ræða síðasta áfangann í launahækkunum í núgildandi kjarasamningi SA og Eflingar sem er aðgengilegur á heimsíðu félagsins ásamt launatöxtum undir kjarmál.  Á síðasta ári hækkuðu launataxtar um 6.750 krónur þann 1. júlí 2009 og aftur þann 1. nóvember um sömu krónutölu kr. 6.750.  1. nóvember tók einnig 3,5% launaþróunartrygging gildi hjá þeim sem enga hækkun höfðu fengið frá 1. janúar 2009 og voru ekki á kauptaxta.  Ef um hækkanir á launum var að ræða á þessu tímabili þá drógust þær frá 3,5%.

Samningurinn gildir til 30. nóvember á þessu ári en þá eru einnig aðrir kjarasamningar Eflingar lausir svo sem við ríki, sveitarfélög, hjúkrunarheimili og Reykjavíkurborg.  Hliðstæð hækkun á launataxta gildir einnig frá 1. júní fyrir samninga Eflingar sem heyra undir opinbera samningssviðið en nánari upplýsingar má finna undir síðu kjaramála.