Lítið um verkfallsbrot

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

12-02-20

deila

Verkfallsvakt Eflingar varð vör við eitt verkfallsbrot á vinnustað Reykjavíkurborgar í dag, miðvikudaginn 12. febrúar. Verkfallsbrotið fólst í því að deildarstjóri á leikskóla er talinn hafa gengið í störf Eflingarstarfsmanns. Brotið hefur verið tilkynnt stjórnendum Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.

Verkfallsvaktin heimsótti hátt í 60 vinnustaði borgarinnar á þremur bílum. Sérstök áhersla var lögð á verkfallsvörslu í grunnskólum borgarinnar að þessu sinni. Þá verður litið inn á nokkra vaktavinnustaði seinnipartinn í dag og kvöld.

Verkfallsverðir fengu hlýjar móttökur á vinnustöðum borgarinnar og er ljóst að mikill stuðningur er við baráttu félagsmenna í stéttarfélaginu meðal annars starfsfólks borgarinnar og almennings.Efling býður áhugasömum félagsmönnum í verkfalli að taka þátt í verkfallsvörslunni á morgun og í næstu viku með því að senda tölvupóst á felagssvid@efling.is

Við þökkum kærlega fyrir góðar móttökur og fyrir þann samhug sem starfsfólk frá öðrum stéttarfélögum, foreldrar barna og notendur þjónustu sem hefur skerst hafa sýnt.