
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Eins og undanfarin ár heldur Efling ljósmyndasamkeppni á meðal félagsfólks. Myndirnar eiga að endurspegla frí innanlands og því er tilvalið að nota sumarbústaðaferðina í sumar til myndatöku. Að þessu sinni verða verðlaun veitt fyrir fyrsta og annað sætið. Myndirnar verða svo birtar á miðlum Eflingar.
Fyrstu verðlaun: 50.000 kr
Önnur verðlaun: 25.000 kr
Skila þarf myndinni ásamt upplýsingum um nafn og símanúmer í tölvupósti á netfangið efling@efling.is með viðfangsefninu „Ljósmyndakeppni“.
Myndirnar skulu vera í góðum gæðum og ekki er heimilt að senda fleiri en þrjár myndir frá hverjum keppanda. Síðasti skilafrestur er 31. ágúst. Í dómnefnd sitja Sólveig Anna Jónsdóttir, Magdalena Kwiatkowska og Ragnheiður Hera Gísladóttir. Dómnefnd mun tilkynna um vinningshafa 8. september.
Hér fyrir neðan má sjá glæsilegu sigurmyndina frá því í fyrra eftir Nicholai Xuereb sem sýnir hnúfubak að leik í sólsetri við Faxaflóa.


