
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Efling stéttarfélag stendur fyrir skemmtiviðburðinum Matur og menning öðru sinni, sunnudaginn 29. september. Óhætt er að hvetja félagsfólk til að taka daginn frá því að viðburðurinn sló í gegn á síðasta ári þegar hann var haldinn í fyrsta skipti.
Á Mat og menningu koma Eflingarfélagar saman og njóta dýrindis heimatilbúins matar sem aðrir félagar hafa útbúið og á uppruna sinn í heimalöndum þeirra. Í fyrra var boðið upp á mat frá 13 þjóðlöndum en af nægu er að taka þar eð Eflingarfélagar koma frá um 140 mismunandi upprunalöndum.
Óhætt er að segja að viðburðurinn hafi slegið algjörlega í gegn hjá þeim mikla fjölda Eflingarfélaga sem hann sóttu í fyrra. Félagar eru hvattir til að merkja við 29. september í dagatalinu því Matur og menning er viðburður sem enginn Eflingarfélagi vill missa af!
Hér má finna frekari upplýsingar fyrir þá Eflingarfélaga sem vilja elda og koma með mat á hátíðina.

