
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Efling býður áhugasömum félögum að vera með í skemmtiviðburðinum Matur og menning sem haldinn verður sunnudaginn 29. september. Á viðburðinum bjóða Eflingarfélagar upp á mat frá sínu upprunalandi. Þar er af nógu taka því Eflingarfélagar frá 13 mismunandi upprunalöndum hafa þegar skráð sig til að elda mat!
Húsið verður opnað fyrir gestum klukkan 14:00 og mun viðburðurinn standa til klukkan 16:00. Tímasetningin er sunnudagur 29. september og staðsetning er Félagsheimili Eflingar, 4. hæð í Guðrúnartúni 1.
Maturinn verður á boðstólum án greiðslu og ókeypis er á viðburðinn fyrir Eflingarfélaga, en það er nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram. Leyfilegt er að taka með sér gesti. Skráið fjöldann sem kemur með ykkur í eyðublaðið hér að neðan (hámark 5).
VEGNA MIKILLAR AÐSÓKNAR OG PLÁSSLEYSIS ER LOKAÐ FYRIR FLEIRI SKRÁNINGAR AÐ SVO STÖDDU
Upplýsingar fyrir þá sem vilja koma með mat:
- Ennþá opið fyrir skráningar til hádegis 25. september.
- Félagið greiðir efniskostnað við matargerð gegn skilum á kvittun.
- Efling útvegar diska, hnífapör, servíettur og drykki.

