
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Langar þig að útbúa ljúffengan mat frá þínu upprunalandi og leyfa öðrum Eflingarfélögum að smakka í frábærum félagsskap?
Efling býður áhugasömum félögum að vera með í skemmtiviðburðinum Matur og menning sem stefnt er á að halda sunnudaginn 24. september. Á viðburðinum bjóða Eflingarfélagar bjóða upp á mat frá sínu upprunalandi. Þar er af nógu taka því Eflingarfélagar koma frá 144 mismunandi upprunalöndum!
Maturinn verður á boðstólum án greiðslu og ókeypis er á viðburðinn fyrir Eflingarfélaga.
Upplýsingar fyrir þá sem vilja koma með mat:
- Félagið greiðir efniskostnað við matargerð gegn skilum á kvittun.
- Efling útvegar diska, hnífapör, servíettur og drykki.
- Skráið ykkur með eyðublaðinu hér fyrir neðan.
- Þið fáið nánari upplýsingar sendar í gegnum tölvupóst þegar nær dregur.
- Opið fyrir skráningar til hádegis 20. september.
Húsið verður opnað fyrir gestum klukkan 14:00 og mun viðburðurinn standa til klukkan 16:00. Tímasetningin er sunnudagur 24. september og staðsetning er Félagsheimili Eflingar, 4. hæð í Guðrúnartúni 1.

