Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Samningar Flóans samþykktir
Samningur Flóafélaganna, Eflingar-stéttarfélags,Vlf. Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða í atkvæðagreiðslu félaganna.
Á kjörskrá voru 15.614. Atkvæði greiddu 3.034 eða um 19.4%. Já sögðu 2.603 eða 85.8% þeirra sem afstöðu tóku. Nei sögðu 423 eða 13.9%. Ógildir og auðir seðlar voru 8 eða 0.3.%.
Atkvæðagreiðslan stóð frá því kjörseðlar voru sendir út til félagsmanna þann 10. maí sl. og lauk kl. 15.00 í dag.
Niðurstaðan hefur verið tilkynnt sáttasemjara og Samtökum atvinnulífsins. Þetta þýðir að kjarasamningur Flóafélaganna og Samtaka atvinnulífsins á almennum markaði er kominn í gildi þar sem SA hefur þegar samþykkt samninginn af sinni hálfu.

