
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Eflingarfélögum bjóðast miðar á útgáfutónleika hljómsveitarinnar Grýbos í Tjarnarbíói 24. september næstkomandi. Miðarnir eru án endurgjalds og sækja þarf þá í afgreiðslu skrifstofu Eflingar stéttarfélags í Guðrúnartúni 1, 3. hæð.
Miðarnir eru aðeins 25 talsins og því um að gera að hafa hraðar hendur. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Hver Eflingarfélagi getur fengið tvo miða á meðan birgðir endast.
Tónleikarnir eru, sem fyrr segir, útgáfutónleikar sem haldnir eru í tilefni af útgáfu plötunnar Kemur í ljós. Grýbos er tónlistarverkefni bræðranna Alexanders og Jakobs Grybos en með þeim spila Hlynur Sævarsson á bassa, Magnús Már Newman á trommur og Guðjón Steinn á hin ýmsu hljóðfæri.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00.
