Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Mikil stífni í samningum við Orkuveituna
Viðræðum frestað
Eftir þrotlausar setur í húsakynnum ríkissáttasemjara var viðræðum samninganefndar Eflingar við Orkuveituna frestað í gærkvöldi, fimmtudagskvöld. Það hefur reynt talsvert á þolrif samninganefndarinnar að undanförnu. Allt frá upphafi viðræðna hefur samninganefndin mætt mikilli stífni af hálfu Orkuveitunnar og virðast samningamenn OR vera í allt öðrum hugleiðingum en að semja við sitt fólk um launahækkanir á svipuðum nótum og gert hefur verið við aðra sambærilega hópa nú undanfarið. Í samninganefnd Eflingar eru fulltrúar starfsfólks sem sinna fjölbreyttum störfum hjá Orkuveitunni, svo sem útistörfum við lagnavinnu, mötuneytisstörfum, ræstingu og vinnu við fráveitu

