Mundu eftir desemberuppbótinni

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

30-11-22

deila

Desemberuppbót er föst fjárhæð og orlof reiknast ekki ofan á desemberuppbótina.

SA – Samtök atvinnulífsins – Almenni markaðurinn (einkafyrirtæki): 98.000 kr.

Þeir sem eru í starfi fyrstu viku í desember eða hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eiga rétt á uppbót eigi síðar en 15. desember. Fullt ársstarf m.v. 45 vikur eða 1800 klst. á tímabilinu 1. janúar – 31. desember.

Reykjavíkurborg – 109.100 kr. / Ríkið/hjúkrunarheimili: 98.000 kr

Þeir sem eru við störf fyrstu viku nóvember eða hafa starfað í 13 vikur samfellt á árinu skulu fá greidda desemberuppbót 1. desember ár hvert. Full uppbót miðast við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október.

Sveitarfélög – 124.750 kr.

Starfsmaður í 100% starfshlutfalli fær greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag.

___________________________________

Desemberuppbót er greidd m.v. starfshlutfall og starfstíma.
Desemberuppbót á að gera upp við starfslok.