
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Efling ýtir úr vör skóla fyrir félaga sína á vormisseri. Um er að ræða uppstokkun á núverandi fræðslufyrirkomulagi stéttarfélagsins auk nýrrar námsbrautar. Markmiðið er að færa fræðslu til félaga í nútímalegra horf, gera hana fjölbreyttari, markvissari og áhugaverðari en áður.Með skólanum er mynduð eins konar regnhlíf yfir núverandi kennsluframboð Eflingar, þ.e. trúnaðarmannafræðslu, fræðslumorgnana Drop-Inn, virkninámskeið, starfslokanámskeið og önnur stök námskeið. Jafnframt verður boðið upp á svokallað almenna braut fyrir alla Eflingarfélaga.Á almennu brautinni er Eflingarfélögum veittur stuðningur, tæki og tól til að hafa aukin áhrif, beita sér í þágu verkalýðsbaráttunnar og samfélagsmála almennt. Brautin skiptist upp í fjóra hluta.Í fyrsta hlutanum, sem verður kenndur í apríl, verður Eflingarfélögum bent á tækifæri til áhrifa, veitt leiðsögn í tjáningu, leiðbeint um notkun samfélagsmiða og ýmsar aðrar árangursríkar leiðir til að koma skoðunum sínum og hugsjónum á framfæri.Almenn braut Eflingar
Hvað á skólinn að heita?
– Nafnasamkeppni – 50.000 kr. í vinning.
Efnt er til samkeppni um heiti á hinum nýja skóla. Til þess að taka þátt í nafnasamkeppninni sendir þú tillögu, ásamt fullu nafni og kennitölu, á efling@efling.is eða í síma 510-7500 fyrir 1. mars nk. Eigandi vinningstillögunnar hlýtur 50.000 kr. í verðlaun. Hægt er að hafa samband við Fríðu Rós, teymisstjóra fræðslumála hjá Eflingu ef óskað er frekari upplýsinga, frida@efling.is/510-7578.Dómnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum innsendum tillögum þyki engin þeirra hæfa og verður skólanum þá fengið nafn eftir öðrum leiðum.

