Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Nýr kjarasamningur Eflingar við Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs
Í dag, 1. júní var skrifað undir nýjan kjarasamning Eflingar við ríkið.
Nýr kjarasamningur er sambærilegur í flestum meginatriðum og samið var um á almenna markaðnum.
Kjarasamninginn má lesa í heild sinni hér.
Ný launatafla mun taka að lágmarki eftirtöldum prósentu og krónutöluhækkunum:
1. júní 2011 4,25% kr. 12.000
1. mars 2012 3,50% kr. 11.000
1. mars 2013 3,25% kr. 11.00
1. mars 2014 eingreiðsla upp á 38.000 kr. miðað við fullt starf í janúar 2014.
Launataxtar á samningstímabilinu hækka á bilinu 11,4% til 21,2% en samningurinn gildir til 31. mars 2014.
50.000 króna eingreiðsla kemur til útborgunar 1. júlí nk. Sérstakt álag á orlofsuppbót kr. 10.000 kemur til útborgunar 1. Júlí 2011 og sérstakt álag á desemberuppbót kr. 15.000 kemur til útborgunar 1. desember 2011.
Lágmarkstekjutrygging í dagvinnu hækkar einnig:
1. júní 2011 kr. 182.000
1. febrúar 2012 kr. 193.000
1. febrúar 2013 kr. 204.000
Samningurinn fer nú í atkvæðagreiðslu og verða kjörgögn send í póst eftir helgi, en niðurstaða mun liggja fyrir 20. júní nk.

