Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Kjörfundir og kynningar á vinnustöðum
Þessa dagana stendur yfir kynning og atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu. Kynningarbæklingur um innihald samningsins hefur verið sendur til allra félagsmanna Eflingar, Hlífar og VSFK sem starfa hjá þeim hjúkrunarheimilum og stofnunum sem eru innan Samtakanna.
Eftir langt samningsþóf við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu var skrifað undir samning þann 8. maí sl. við hjúkrunarheimilin á sambærilegum nótum og við ríkið. Talsverður tími fór hins vegar í viðræður milli Samtakanna við ríkið varðandi fjármögnun samningsins. Nú liggur fyrir niðurstaða varðandi þann þátt og fer því samningurinn í kynningu og atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna. Farið verður á stærstu vinnustaðina og innihald samningsins kynnt þar en samhliða því fer fram atkvæðagreiðsla með kjörfundarfyrirkomulagi.
Fyrirkomulag og tímasetningar kynningarfundanna hjá Eflingu er sem hér segir:
Þá hefur kynningarbæklingur verið sendur á alla félagsmenn sem starfa hjá þeim hjúkrunarheimilum og stofnunum sem eru innan Samtaka fyrirækja í velferðarþjónustu.
Niðurstaða atkvæðagreiðslu mun liggja fyrir mánudaginn 26. maí kl. 16.00.

