Opnað fyrir vetrarleigu orlofshúsa – Breyttar úthlutunarreglur

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

15-08-24

deila

Opnað hefur verið fyrir fyrri hluta vetrarleigu orlofshúsa Eflingar. Eflingarfélagar geta bókað orlofshús á Mínum síðum á vefsíðu Eflingar, en úthlutunarreglum hefur verið breytt lítillega frá því sem áður var. 

Breytingarnar eru fólgnar í því að áður var hægt að leigja staka daga eða bæta aukadögum við helgarleigu. Sökum mikillar eftirspurnar eftir leigu á orlofshúsum Eflingar og þess óhagræðis sem er fólgið í því að leigja húsin út í aðeins einn dag hefur verið fallið frá þessu. 

Nýju úthlutunarreglurnar eru með þeim hætti að nú er aðeins hægt að leigja orlofshúsin yfir helgi, frá föstudegi til mánudags, eða í vikutíma, hvort heldur sem er frá mánudegi til mánudags eða föstudegi til föstudags. Með umræddum breytingum er hægt að anna eftirspurn eftir orlofshúsum Eflingar í meira mæli, þar eð mun betri nýting næst með nýju reglunum. 

Hér má finna leiðbeiningar um bókun orlofshúsa Eflingar.

Hér má finna beina slóð inn á Mínar síður Eflingar til að bóka orlofshúsin.