Opnun á vetrarleigu orlofshúsa Eflingar frestast til föstudagsins 21. ágúst

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

17-08-26

deila

Af óviðráðanlegum orsökum hefur þurft að fresta opnun á bókunum fyrir orlofshús Eflingar fyrrihluta komandi vetrar. Til stóð að hægt yrði að byrja að bóka á morgun, 18. ágúst, en því miður er nauðsynlegt að fresta opnunni til föstudagsins 21. ágúst. Efling biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.


Á föstudag geta Eflingarfélagar farið inn á Mínar síður á vefsíðu Eflingar og bókað orlofshús. Leigutímabilið sem um ræðir er frá 28. ágúst-21. desember 2026, og bæði er hægt að bóka helgar- og vikuleigu. 


Mikil eftirspurn er alla jafna eftir orlofshúsum félagsins yfir vetrartímann, ekki síst þeim húsum sem eru skammt frá höfuðborgarsvæðinu. Því er vænlegt að bóka tímanlega.


Opnað verður fyrir bókanir orlofshúsa yfir jól og áramót 11. september næstkomandi. Tímabilin sem þar er um að ræða eru frá 22.-29. desember og 29. desember-5. janúar. Aðeins er hægt að leigja orlofshús í viku í senn yfir hátíðarnar.


Þá verður opnað fyrir bókunartímabilið 5. janúar-27. maí 2027 að morgni 2. nóvember næstkomandi. Umsóknartímabil fyrir páska verður auglýst síðar.