Óskað er eftir tilnefningum til setu á 7. þingi Starfsgreinasambands Íslands 2019

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

17-09-19

deila

Efling – stéttarfélag býður félagsmönnum að gefa kost á sér til setu sem fulltrúar félagsins á 7. þingi Starfsgreinasambands Íslands sem fram fer dagana 24.-25. október næstkomandi.Áhugasamir félagsmenn eru hvattir til að senda inn tilnefningu á netfangið felagssvid@efling.is, í síma 510-7500 eða með því að koma á skrifstofur félagsins í Guðrúnartúni. Tilnefning þarf að berast fyrir klukkan 12 á hádegi mánudaginn 23. september. Félagsmönnum er heimilt að tilnefna félagsmenn aðra en sjálfan sig. Óskað er eftir að eftirfarandi upplýsingar komi fram í tilnefningu:

  • Nafn og kennitala
  • Sími
  • Netfang
  • Vinnustaður og/eða starfsgrein sem viðkomandi óskar eftir að vera fulltrúi fyrir (ekki skilyrði)
  • Reynsla, þekking eða annað sem viðkomandi vill láta koma fram (ekki skilyrði)

Formaður Eflingar mun á grunni tilnefninga gera tillögu að lista yfir þingfulltrúa Eflingar. Við smíði þeirrar tillögu verður tekið tillit til reynslu og hæfni einstaklinga en einnig þess að listinn endurspegli félagið í heild með hliðsjón af aldri, kyni, uppruna og fleiri þáttum. Tillaga formanns að lista mun í kjölfarið liggja frammi á skrifstofum Eflingar til skoðunar og gefst frestur til 1. október að leggja inn mótframboð.Þing Starfsgreinasambandsins er æðsta vald í málefnum þess og er haldið á tveggja ára fresti. Aðildarfélög senda mismarga fulltrúa á þingið reiknað eftir fjölda félagsmanna og mun Efling að þessu sinni eiga 60 fulltrúa. Samtals sitja 135 fulltrúar launafólks á þinginu og móta þeir stefnu SGS og kjósa forystu þess.Þingið er haldið á Icelandair Hótel Natura  24. október kl. 10:0-16:00 og 25 október kl. 9:00-16:00