Rífandi stemning á baráttufundi í Iðnó

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

04-02-20

deila

Félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg fjölmenntu í Iðnó í dag á baráttu- og samstöðufund.Verkfall hófst hjá þessum hópi kl. 12.30 og stendur til 23.59.Húsfyllir var í Iðnó þegar dagskrá hófst þar sem Sólveig Anna ávarpaði samkomuna, Bubbi Morthens tók lagið og félagsmenn úr röðum Eflingar lýstu kjörum sínum og hverju þau vilja ná fram í samningum. Þá var þeim sem fram komu í myndböndum Eflingar, Jólasögur úr borginni, þakkað fyrir hugrekki sitt og framlag í þágu baráttunnar.Að lokinni dagskrá gekk Eflingarfólk yfir í ráðhús Reykjavíkur með Sólveigu Önnu í fararbroddi. Baráttuandi sveif yfir vötnum og ljóst að samstaða ríkir um að ná fram bættum kjörum fyrir láglaunafólkið í borginni.