Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Á fimmtudaginn og föstudaginn verður verkfall í rútufyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni, í 48 tíma alls. Rútubílstjórar í Eflingu eru beðnir að hjálpa við að verja verkfallið. Verkfallsvarsla verður í tveimur vöktum, klukkan 2:00 og 7:00 að morgni hvors dags.
Til að taka þátt í verkfallsvörslu og fá styrk úr verkfallssjóði er mætt á skrifstofu Eflingar, Guðrúnartún 1, við upphaf vaktar. Ef þú vinnur að nóttu til, þá er þín vakt sú sem hefst klukkan 2:00. Ef þú vinnur að degi til, þá er þín vakt sú sem hefst klukkan 7:00. Vaktirnar eru þær sömu á fimmtudag og föstudag.
Á skrifstofu Eflingar, við upphaf vaktar, verður farið yfir áætlunina. Svo hefst verkfallsvarslan.
Efling álítur allan akstur hópferðabifreiða á félagssvæði Eflingar, af hálfu annarra en eigenda og æðstu stjórnenda, vera verkfallsbrot. Félagssvæði Eflingar er appelsínugula svæðið á þessari mynd:


