Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Alþýðusamband Íslands og BRSB hafa stofnað íbúðafélag sem starfar í nýju íbúðarkerfi sem nú er verið að taka upp hér á landi. Íbúðakerfið byggir á danskri fyrirmynd og verður hagstæður og öruggur valkosturfyrir fólk á leigumarkaði.Íbúðafélagið er sjálfseignarstofnun sem starfar samkvæmt lögum um almennar íbúðir og er rekin án hagnaðarmarkmiða. Skilyrði er að íbúðirnar verði leigðar út til fólks með lágar- og meðaltekjur.Íbúðafélagið hefur undirritað viljayfirlýsingu við Reykjavík og Hafnarfjarðarbæ um lóðir fyrir 1150 íbúðir á næstu 4 árum og mun undirbúningur framkvæmda vegna 180 íbúða hefjast á þessu ári. Samhliða þessum fyrstu skrefum vinnur íbúðafélagið að lausn fyrir sveitarfélög á landsbyggðinni.Óskað er eftir tillögum um nafn á félagið og er því blásið til nafna samkeppni. Nafnið skal vera þjált í notkun og gefa félaginu jákvæða ímynd.Tillögum um nöfn má skila inn fyrir 16. október á netfangið asi@asi.is Frjálst er að senda inn fleiri en eina tillögu.Verðlaun 50.000 kr. verða veitt fyrir bestu tillöguna. Ef fleiri en einn leggja til vinningsnafnið verður vinningshafinn dreginn út.

