Samkomulag um breytingar og framlengingu á samningum við ríkið

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

11-04-14

deila

Flóafélögin Efling, Hlíf og VSFK samþykktu

Atkvæði voru í dag talin í atkvæðagreiðslu Flóafélaganna, Eflingar, Hlífar og VSFK um samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi við fjármála og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs sem  undirritað var þann 1. apríl sl.  Samkomulagið var  samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða eða um 88,5% atkvæða.  Þetta þýðir að kjarasamningur er kominn á milli aðila og er afturvirkur frá 1. mars sl. og gildir til 30. apríl 2015.

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru eftirfarandi:

Já  sögðu  111   eða   88,5% þeirra sem atkvæði greiddu
Nei  sögðu    14  eða     11,3%

Auðir seðlar og ógildir voru 2

Samkvæmt þessum tölum er samkomulagið samþykkt. Á kjörskrá voru alls 545  félagsmenn. Atkvæði greiddu 127 eða 23,3%.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðum félaganna um innihald samkomulagsins.