Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Flóabandalagið, þ.e. Efling-stéttarfélag, Verkalýðsfélagið Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, VR og Landssamband ísl. verzlunarmanna, hittust í morgun hjá Ríkissáttasemjara til að funda með Samtökum atvinnulífsins og fara yfir þær tillögur sem SA hefur lagt fram í kjaraviðræðunum. Fyrir fundinn sagði Sigurður Bessason, formaður Eflngar-stéttarfélags að það væri erfiður gangur í viðræðunum en yfir stendur atkvæðagreiðsla um boðun verkfallsaðgerða hjá félagsmönnum Eflingar sem lýkur á hádegi þann 20. maí n.k. Ef ekki verður samið hefjast tveggja daga verkföll í ákveðnum atvinnugreinum dagana 28. maí til og með 5. júní og frá og með 6. júní hefst ótímabundið allsherjarverkfall.

