Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Fær góðar móttökur félagsmanna
Nýr kjarasamningur Eflingar-stéttarfélags við Reykjavíkurborg hefur fengið góðar móttökur félagsmanna. Á fundum sem haldnir hafa verið í gær og í dag hafa undirtektir félagsmanna verið mjög jákvæðar og margir greitt atkvæði. M.a. sendu starfsmenn eins leikskóla borgarinnar, Leikskólanum Klömbrum við Háteigsveg Eflingu hamingjuóskir með frábæran árangur og með góðan samning.
Alls hafa á þriðja hundrað félagsmenn komið á kynningarfundi um samninginn og greitt atkvæði að fundinum loknum. Um er að ræða starfsmenn á leikskólum, í grunnskólum, í sorphirðu og hjá garðyrkju- og tæknisviði.
Á mánudag verður kynningarfundur fyrir velferðar og þjónustusvið kl. 16.30 í Kiwanishúsi.
Þeir sem ekki hafa komist á fyrri fundi eru velkomnir í Kiwanishúsið á mánudaginn.

