SGS samþykkir að höfða mál fyrir Félagsdómi

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

13-08-19

deila

Starfsgreinasamband Íslands harmar þá afstöðu samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga, að neita að ganga til kjarasamningsviðræðna um hvernig ná megi fram jöfnuði milli almenna og opinbera lífeyriskerfisins, sérstaklega hvað félagsmenn aðildarfélaga SGS og almennt verkafólk í þjónustu sveitarfélaganna varðar, líkt og samið var um í kjarasamningum 7. júlí 2009.Nú þegar hefur stærsta sveitarfélag landsins ákveðið að efna samkomulag aðila fyrir sitt leiti en önnur þverskallast við og neita að ganga til viðræðna um jöfnun lífeyrisréttinda starfsmanna sinna á þeirri forsendu að þau hafi aldrei undirgengist slíka skyldu. SGS hafnar þeirri afstöðu alfarið enda ráð gert fyrir þessari óefndu jöfnun í öllum forsendum og útreikningum aðila eftir 2009.Formannafundur SGS samþykkir því sambandið muni höfða mál fyrir Félagsdómi þar sem látið verður reyna á túlkun samningsákvæðisins frá 2009 um skyldu sveitarfélaga til þess að ganga til kjarasamningsviðræðna um jöfnun lífeyrisréttinda.