Sjómenn fara í verkfall
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Í kvöld, 10. nóvember, slitnaði uppúr viðræðum sjómanna og útvegsmanna um nýjan kjarasamning. Verkfall undirmanna á fiskiskipum skellur því á kl. 23:00. Í tilkynningu frá Sjómannasambandi Íslands segir að ástæða þess að upp úr slitnaði er fyrst og fremst deila um mönnun uppsjávarskipa og ísfisktogara. Sjómenn telja að alltof langt sé gengið í fækkun sjómanna í þessum skipaflokkum. Tillögur að lausn komu fram en ekki náðist niðurstaða í þessum málum.
Verkfallið nær til 3.500 sjómanna og verður þetta fyrsta verkfall sjómanna hér á landi í fimmtán ár en sjómenn hafa verið samningslausir allt frá því í ársbyrjun 2011 þegar samningar losnuðu.

