Sjötta þingi SGS lokið – ályktanir samþykktar og forystan kjörin

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

12-10-17

deila

Sjötta þingi Starfsgreinasambands Íslands lauk á hádegi 12. október. Á þinginu voru samþykktar nokkrar ályktanir en 135 fulltrúar þeirra 19 aðildarfélaga sem skipa SGS sátu fundinn en unnið var í nokkrum nefndum inni á þinginu. Samþykkt var fjárhagsáætlun fyrir næstu tvö árin og sömuleiðis starfsáætlun en í ljósi góðrar stöðu sambandsins var skatthlutfall aðildarfélaganna lækkað. Þá var sérstaklega fjallað um reglur varðandi félagsaðild og hugsanlega samræmingu reglna á milli sjúkrasjóða.Ályktanirnar má sjá hér.Ályktun um húsnæðis- og velferðarmálÁlyktun um fjölskylduvænna samfélagÁlyktun um kjara- og atvinnumálÁlyktun um lífeyrismálForysta SGS kjörin á þingi sambandsinsBjörn Snæbjörnsson (Eining-Iðja) var endurkjörinn formaður til næstu tveggja ára og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir (AFL) var sömuleiðis endurkjörinn varaformaður.Ragnar Ólason, þjónustufulltrúi hjá Eflingu-stéttarfélagi var endurkjörinn í Framkvæmdastjórn sambandsins ásamt þeim Aðalsteini Á. Baldurssyni (Framsýn stéttarfélag), Halldóru Sveinsdóttur (Báran stéttarfélag) og  Kolbeini Gunnarssyni (Vlf. Hlíf) og ný inn er Guðrún Elín Pálsdóttir (Vlf. Suðurlands).Efling-stéttarfélag á aðild að Starfsgreinasambandi Íslands (SGS)  sem er landssamband almenns og sérhæfðs verkafólks. SGS er stærsta landssamband innan ASÍ, en 19 verkalýðsfélög þar með talið Efling-stéttarfélag eiga aðild að sambandinu.