Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Efling stéttarfélag ásamt tuttugu og einu stéttarfélagi um allt land á almenna markaðnum og hjá hinu opinbera hafa skorað á heilbrigðisráðherra að löggilda starfsheitið félagsliði.Félagsliðar hafa barist fyrir því að verða löggilt heilbrigðisstétt um árabil en lítið hefur gengið. Minnt er á mikilvægi starfa félagsliða sem nú eru um 1000 talsins á landinu og vinna mikilvæg störf í þjoðfélaginu. Fulltrúar félagsliða gengu á fund heilbrigðisráðherra í nóvember síðastliðnum til að tala fyrir löggildingu en engar fréttir hafa borist af framgangi málsins. Á fræðsludegi félagsliða sem haldinn var nýverið er ljóst að krafan um löggildingu er sterk innan stéttarinnar enda ólíðandi að félagsliðar sitji ekki við saman borð og sambærilegar stéttir. Löggilding félagsliða er ekki bara mikilvæg fyrir framgang stéttarinnar heldur ekki síst fyrir gæði þjónustu við þann vaxandi hóp sem þarf á aðstoð að halda.Áskorunina má sjá hér.

