Slitnar upp úr viðræðum

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

26-04-06

deila

Slitnar upp úr viðræðum á hjúkrunarheimilum

Efling skorar á ráðherra að höggva á hnútinn

Slitnað hefur upp úr viðræðum milli starfsmanna á hjúkrunarheimilum og SFH, samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu.

Efnislegar umræður fóru fram í dag þar sem ágreiningur stóð fyrst og fremst um þá kröfu atvinnurekenda að leiðrétting launa yrði á tímabilinu frá 1. maí 2006 til 1. janúar 2007, en á svo langt tímabil gátu fulltrúar launafólks ekki fallist.

Ekki var ágreiningur um það að samninganefnd SFH lýsti sig reiðubúna til að jafna þann launakostnaðarmun sem er milli kjarasamninga á hjúkrunarheimilunum og samninga Reykjavíkurborgar þar sem greidd yrðu sömu laun fyrir sambærilega vinnu.

Efling-stéttarfélag lýsir yfir miklum vonbrigðum með að ekki skyldi takast að ganga frá samkomulagi. Félagið lýsir fullri ábyrgð á hendur SFH vegna þeirrar stöðu sem nú er komin upp. Fyrir liggja yfirlýsingar af hálfu starfsmanna um frekari aðgerðir. Þar er bæði um að ræða setuverkföll og uppsagnir.

Efling-stéttarfélag skorar því á samninganefnd SFH að endurskoða afstöðu sína tilþeirra tímasetninga sem ágreiningurinn stendur um.Jafnframt skorar félagið á ráðherra fjármála- og heilbrigðismála að höggva þegar í stað á þennan hnút í deilunni.