Staða innflytjenda – Dagsbrúnarfyrirlestur

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

11-02-22

deila

Í Dagsbrúnarfyrirlestri ársins 2022 mun Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins fjalla um stöðu innflytjenda sem eru félagar í aðildarfélögum ASÍ og BSRB á Íslandi út frá fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði og heilsu á grunni könnunar Vörðu á stöðu launafólks meðal félaga í aðildarfélögum ASÍ og BSRB sem nýlega var birt.

Fyrirlesturinn verður haldinn fimmtudaginn 17. febrúar kl. 12.00 í bókasafni Dagsbrúnar, Þórunnartúni 2.

Dagsbrúnarfyrirlesturinn er haldinn í samvinnu Bókasafns Dagsbrúnar, Eflingar og ReykjavíkurAkademíunnar frá árinu 2003 og hefur verið árlegur viðburður ef undan eru skilin árin 2020 og 2021 en þá féllu fyrirlestrarnir niður vegna heimsfaraldurs Covid-19.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og farið verður í einu og öllu eftir gildandi sóttvarnareglum.