Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Aðalfundur Eflingar samþykkir einróma
Aðalfundur Eflingar-stéttarfélags samþykkti á dögunum einróma að heimila stækkun Sætúns 1 en viðbygging hússins hefur verið á dagskrá félagsins nú um nokkurra ára skeið. Heimilað hefur verið að byggja fjögurra hæða viðbyggingu við norðurenda suðurhúss og eina hæð ofan á norðurhús auk nokkurra annarra minni háttar breytinga sem stækka húsið. Sigurður Bessason, formaður Eflingar sagði á fundinum að það væri afar knýjandi að stækka húsnæði Eflingar vegna aukinnar starfsemi félagsins, bæði starfsendurhæfingar og annarrar starfsemi sem koma þarf fyrir í húsinu. Um 1000 fermetra aukning verður á húsnæði Eflingar og kostnaður félagsins af stækkuninni nemur um 352 milljónir króna sem hefur lítil áhrif á fjárhagsstöðu Eflingar. Fram hefur komið hjá byggingaraðilum hússins að viðbygging Sætúns 1 sé mjög hagkvæm á þessum tíma og mjög heppilegt sé að skapa atvinnu við byggingastarfsemi sem hefur verið í mikilli lægð undanfarin ár. Auk Eflingar eru Gildi lífeyrissjóður og ASÍ eignaraðilar hússins og byggingaraðilar að viðbyggingunni. Framkvæmdir munu hefjast í haust.
Fram kom í máli formanns Eflingar að nú er svo komið að húsnæði Eflingar er að mestu fullnýtt. Það liggur fyrir að VIRK Starfsendurhæfing hefur leitað eftir því að halda áfram í húsinu og er þar um mjög traustan aðila að ræða auk þess sem þarf að sjá starfsemi Eflingar fyrir nýju húsnæði vegna aðkallandi verkefna á næstu misserum. Formaður Eflingar sagði að mjög dýrmætt væri að fá stækkun á húsið fyrir Eflingu sem væri á einum dýrmætasta stað í borginni. Gildi lífeyrissjóður og ASÍ hafa fyrir sitt leyti samþykkt nýbygginguna. Þá hefur trúnaðarráð Eflingar veitt heimild fyrir byggingaframkvæmdum.
Alls er um 1000m2 stækkun sem kemur í hlut Eflingar en eignarhlutur félagsins fer úr 40,94% í 46,7% af heildareign Sætúns 1. Heildarbyggingakostnaður er áætlaður um 562.5 milljónir og kemur um 351 milljón af því til kostnaðar frá Eflingu sem er um 4,2% af heildareignum Eflingar samkvæmt ársreikningi fyri rárið 2012 sem kynntur var á fundinum.
Það er Teiknistofa Halldórs Guðmundssonar sem mun bera hitann og þungann af teikningum og stjórna framkvæmdum við húsið en THG sá um byggingu hússins á sínum tíma sem tekið var í notkun árið 2000.

