Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Í kjölfar óánægju sem upp kom meðal starfsmanna Hreint sem starfa við ræstingar á Landspítalanum er ljóst að umkvartanir starfsmanna voru fyllilega á rökum reistar. Eins og greint var frá á heimasíðu félagsins þann 19. nóvember síðastliðinn kom nýlega til áreksturs þegar fulltrúi Eflingar var rekinn af fundi þar sem pólskir ræstingarstarfsmenn höfðu óskað eftir nærveru Eflingar.
Á fundi sem haldinn var með fulltrúum Eflingar og Hreint þann 26. desember sl.var farið yfir þau ágreiningsefni sem fram hafa komið af hálfu starfsmanna Hreint sem starfa við ræstingar á Landspítala í Fossvogi. Hreint lýsti yfir fullum vilja að leggja fram tímaskráningar og launaseðla og greiða í framhaldinu það sem á vantaði í vangoldnum launum. Ljóst er að ýmislegt vantar upp á svo að þær lágmarksgeiðslur séu uppfylltar samkvæmt kjarasamningi.
Fundað verður að nýju með fyrirtækinu í næstu viku til þess að fylgja því eftir að staðið verði við umsamdar leiðréttingar. Ljóst er að umkvartanir starfsmanna voru fullkomlega á rökum reistar.
Gríðarlegt vinnuálag
Starfsmenn Hreint höfðu ítrekað kvartað við fyrirtækið að vinnufyrirkomulagið væri með þeim hætti að unnið væri samfellt í tólf daga án þess að veittur væri frídagur. Eftir athugasemdir Eflingar hefur Hreint fallist á að breyta því vinnufyrirkomulagi enda kveður kjarasamningur á um að einungis í undantekningartilvikum sé hægt að veita slík frávik.
Vegna umkvartana starfsmanna um mikið vinnuálag skorar félagið á Landspítala Háskólasjúkrahús að mæla þörf vinnuframlags miðað við fyrirliggjandi útboðsgögn fyrir Landspítala í Fossvogi.

