Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Starfsmenn í mötuneytum og eldhúsum
Tækifæri til að byggja upp menntun
-segir Margrét Sigbjörnsdóttir verkefnastjóri
Samtals hafa um hundrað þátttakendur komið á Fagnáskeiðin hjá Sæmundi Fróða frá því kennsla hófst vorið 2005. Námið hefur einnig verið hvating til að halda áfram námi og nú í haust hefja 15 félagsmenn Eflingar nám í matartækni eftir að hafa lokið Fagnámskeiðunum. Þau eru að fullu metin sem hluti af námi matartækna og geta þannig orðið góður grunnur að framtíðarmennun á þessu sviði, segir Margrét Sigbjörnsdóttir í samtali við Eflingarblaðið. Hún bætir því við að þetta sé einstakt tækifæri fyrir félagsmenn Eflingar sem vinni í mötuneytum og tengdum störfum við matreiðslu að byggja upp menntun sína.
Vorið 2005 hófst samstarf á milli Sæmundar fróða og Eflingar sem miðaði að því bjóða fram nám í matvæla- og veitingagreinum sem væri sniðið að þörfum fólks sem starfar í þessum greinum. Námsleiðin kallast Fagnám í matvæla- og veitingagreinum og skiptist í þrjú þrep: Fagnám I, II og III.
Tilgangur námsins er að auka færni starfsfólks til að sinna störfum sínum í mötuneytum og eldhúsum og til að takast á við fjölbreytileg og síkrefjandi störf. Nú er gerð krafa um að þeir sem sjá um matargerð hafi ákveðna þekkingu á gildi hollustu og einnig færist í vöxt ýmiss konar ofnæmi og óþol sem verður að sinna af þekkingu.
Markmiðið er einnig að gefa fullorðnum aukin tækifæri til fagmenntunar á sviðinu. Einstaklingar sem ljúka námi á námskeiðunum fá nám sitt metið til námseininga í framhaldsskólum. Efling styrkir félagsmenn sína fjárhagslega til að sækja námið og víða er það metið til launa.
Fagnámskeið I og II eru tvær samtengdar lotur sem hvor um sig eru 60 kennslustundir. Að afloknu námi og námsmati hafa þátttakendur tekið samtals sjö einingar sem metnar eru inn í framhaldsskólann. Eftirtaldir áfangar eru kenndir á námskeiðunum: Næringarfræði, hreinlætis- og örverufræði, upplýsingatækni (tölvur), samskipti- og tjáning og matreiðsla.
Fagnámskeið III skiptist í tvær lotur samtals 80 kennslustundir sem metnar eru til 5 eininga. Í fyrri lotunni eru kenndir áfangarnir: Matreiðsluaðferðir og matseðlafræði, en í seinni lotunni: Matur og menning , hráefnisfræði og matreiðsla.
Sæmundur fróði er símenntunarstöð í eigu Menntaskólans í Kópavogi og matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR fræðsluseturs. Kennslan fer fram í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi.

