
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Stjórn Eflingar tekur að fullu leyti undir
ályktun miðstjórnar Alþýðusambands Íslands
um ólöglegt árásarstríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran, sjá hér:
Á fyrstu klukkustundum hinna ólögmætu árása höfðu Bandaríkin sprengt íranskan barnaskóla og myrt þar hátt í tvö hundruð stúlkur og kennara þeirra. Allt bendir til þess að þar hafi um viljaverk verið að ræða en slíkt er gróft brot á alþjóðalögum og sáttmálum. Við tökum undir kröfur um að glæpurinn verði rannsakaður og þeir seku látnir svara til saka fyrir stríðsglæpadómstól.
Árásir Bandaríkjanna og Ísrael á Íran er brot gegn fullveldi landsins og óumdeilanlegum rétti Írana til að ráða eigin örlögum. Árásin er án tilefnis, er glæpur gegn friði og stríðsglæpur, og brýtur þar með gegn sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þannig er um grófa aðför að öllu alþjóðaréttarkerfinu, sem komið var á í kjölfar stríðsglæpa þeirra sem framdir voru í Seinni heimsstyrjöldinni, að ræða, aðför sem siðmenntuðum þjóðum ber skylda að standa gegn.
Stjórn Eflingar krefst þess að íslensk stjórnvöld fordæmi stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísrael. Ekki gengur að ríkisstjórn Íslands leggi ekki sitt af mörkum í baráttunni fyrir friðsamlegu samskiptum á milli þjóða heimsins.
