Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Boðinn og Efling
Stjórnvöld tímasetji framkvæmdir
Á fjölmennum fundi trúnaðarráða Verkalýðs- og sjómannafélagsins Boðans og Eflingar-stéttarfélags í gærkvöldi var samþykkt að skora á ríkisstjórnina tímasetja nú þegar þær mannaflsfreku framkvæmdir sem stjórnvöld hafa boðað á næstu mánuðum. Ályktunin er svohljóðandi.
Sameiginlegur fundur Trúnaðarráða Eflingar-stéttarfélags og Verkalýðs- og sjómannafélagsins Boðans haldinn 9. desember lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun atvinnumála á undanförnum vikum. Á níunda þúsund manns eru nú án atvinnu á landinu og í hverri viku bætast við mörg hundruð manns á skrána.
Ríkisstjórnin hefur lýst því yfir stefnt verði að mannaflsfrekum, atvinnuskapandi aðgerðum á vegum ríksins með þátttöku sveitarfélaganna og aðila vinnumarkaðarins.
Félögin krefjast þess að stjórnvöld tímasetji nú þegar þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru þannig að hægt sé að búa til öfluga viðspyrnu í atvinnumálum.
Atvinnuleysisbölinu verður að bæja frá dyrum landsmanna með öllum tiltækum ráðum. Félögin skora á ríkisstjórn, sveitastjórnir og atvinnurekendur að taka höndum saman um þetta mikilvæga verkefni.

