Stjórnvöldin skerða lífeyrinn

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

14-12-11

deila

Stjórnvöldin

Skerða lífeyrinn

Verkalýðshreyfingin mótmælir skattlagningu

Nýtt frumvarp ríkisvaldsins gerir ráð fyrir nýrri skattheimtu á lífeyrissjóði sem þýðir jafnframt að skerða þarf réttindi sjóðfélaga í sjóðnum.  Fjármálaráðherra lítur svo á að  samkomulag sé um það við verkalýðshreyfinguna að lífeyrissjóðirnir fjármagni að hluta  vaxtabætur til að mæta kostnaði lántakenda húsnæðislána eftir efnahagshrunið. Þessu hefur verkalýðshreyfingin mótmælt harðlega og bendir Efling m.a. á að tæplega helmingur félagsmanna Eflingar búi í eigin húsnæði og engar forsendur séu til að skattleggja lífeyrisréttindi þessa hóps sérstaklega.

Það er með öllu óásættanlegt að ríkisvaldið skuli velja þá leið að rýra réttindi okkar félagsmanna á þeim forsendum að þeir þurfi að leggja til fjármagn til þess að greiða niður húsnæðislán.  Nýleg viðhorfskönnun Gallups sýnir að einungis um 45% félagsmanna Eflingar býr í eigin húsnæði og því ekki um niðurfellingu eða lækkun á lánum  í þeim mæli sem að ríkisvaldið vísar til. 

Ríkisvaldið ætlar hér að höggva í lífeyrissparnað sem að félagsmenn hafa áunnið sér í samræmi við umsamda kjarasamninga en bæta upp skerðinguna hjá opinberum lífeyrissjóðum og alþingismönnum með hinni hendinni þar sem ríki og sveitfélög bera ábyrgð á hallarekstri opinberu sjóðanna.

Skattlagningunni hefur þegar verið harðlega mótmælt eins og sjá má á heimasíðu Gildis og Landssamtaka lífeyrissjóða.