Sýnum samstöðu – Efling í bleiku

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

16-10-15

deila

Skrifstofa Eflingar var vel bleik á bleika deginum föstudaginn 16. október þegar starfsfólkið mátaði bleika litinn við sig. Október er mánuður Bleiku slaufunnar sem er  árveknis- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Af því tilefni hvatti Krabbameinsfélagið landsmenn um að klæðast einhverju bleiku föstudaginn 16. október eða hafa bleikan lit í fyrirrúmi þann dag. Markmið Bleiku slaufunnar í ár, er að skipuleg leit að ristilkrabbameini verði að veruleika.Efling- stéttarfélag hefur síðast liðin ár lagt sitt af mörkum og styrkt Krabbameinsfélagið með kaupum á Bleiku slaufunni. Félagsmönnum Eflingar stendur einnig til boða styrkur vegna grunnskoðunar hjá Krabbameinsfélaginu og hvetur félagið alla til að nýta sér það.