Tæp 80% félagsmanna Eflingar hlynntir verkfalli

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

12-02-19

deila

Í nýrri könnun sem Gallup framkvæmdi meðal félagsmanna Eflingar-stéttarfélags kemur í ljós afdráttarlaus stuðningur við kröfugerð félagsins í kjarasamningum. Tæplega 80% félagsmanna telja hana sanngjarna og sama hlutfall segist hlynnt því að fara verkfall til að knýja á um launakröfur verkalýðsfélaganna.

Það er ekki síst erlendur hluti vinnuaflsins sem að fylkir sér bak við launakröfurnar en samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar hefur stuðningur við kröfur og verkfallsaðgerðir auk væntinga um launahækkanir í kjölfar kjarasamninga tilhneigingu til að vera meiri meðal félaga af erlendum uppruna.

Þá leiðir könnunin í ljós mikla aukningu á fjárhagsáhyggjum meðal félagsmanna frá launakönnun sem framkvæmd var í ágúst síðastliðnum. En þær aukast um 16% á milli mælinga úr 47% sem hafa miklar eða mjög miklar áhyggjur í kjarakönnun í ágúst 2018 í 63% í janúar 2019. Þetta eru mestu fjárhagsáhyggjur sem hafa mælst í könnunum Eflingar frá hruni.

Spurningarnar voru lagðar fyrir fullvinnandi félagsmenn Eflingar með netkönnun á tímabilinu 19.-26. janúar. Haft var samband við 4758 félagsmenn og þar af svöruðu 1350. Niðurstöður voru vigtaðar út frá atvinnugrein og uppruna.