Tófa Sebastians á Hesteyri vinningsmyndin í ljósmyndasamkeppni Eflingar 2026

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

18-09-26

deila

Mynd Sebastians Wójcik af tófu, tekin á Hesteyri í Jökulfjörðum, er mynd ársins í ljósmyndasamkeppni Eflingar árið 2026. Myndin sýnir tófuna, í miklu návígi við ljósmyndarann, standa íhugula og hálf glottandi í fjörunni á Hesteyri, starandi á Sebastian með gulleitum glyrnum sínum. 


Þema keppninnar í ár, sem og fyrri ár, var frí innanlands. Gæði myndanna sem bárust voru afar mikil og viðfangsefnin margþætt. Þó má segja dýralíf og náttúrufegurð hafi verið mest áberandi þráðurinn, og það ekki að ósekju enda Ísland stórbrotið og bæði flóra landsins og fána fagrar.


Tugir mynda bárust frá félögum í Eflingu og var val dómnefndar síður en svo auðvelt. Af þeim sökum varð niðurstaða dómnefndar að lokum að veita einnig verðlaun fyrir 4. sæti en alla jafna hafa bara verið veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Veitt eru peningaverðlaun til verðlaunahafa, 50 þúsund krónur fyrir fyrsta sæti en 25 þúsund krónur fyrir sæti 2.-4. 


Niðurstaða dómnefndar er eftirfarandi:

  1. sæti: Sebastian Wójcik. Brosandi tófa, tekin á Hesteyri
  2. sæti: Paweł Cieślikiewicz. Kría á veiðum, tekin í Jökulsárlóni
  3. sæti: Karolina Zyzik. Blæbrigði hins græna Íslands, tekin í Þórsmörk 
  4. sæti: Mark Stache. Hestar og blóm.

Auk vinningsmyndanna má sjá hér að neðan fjölda mynda sem fengu sérstakar heiðurstilnefningar frá dómnefnd. Hluti myndanna verður hengdur upp í orlofshúsum Eflingar þar sem félagsfólk fær að njóta þeirra. 

Efling óskar vinningshöfum innilega til hamingju og þakkar öllum sem tóku þátt í keppninni.