Trúnaðaráð samþykkir tillögu uppstillingarnefndar um skipun í stjórn Eflingar

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

19-01-26

deila

Trúnaðarráð Eflingar stéttarfélags samþykkti á fundi sínum 15. janúar tillögu uppstillingarnefndar félagsins um skipun í stjórn félagsins fyrir kjörtímabilið 2026 til 2028, sem nú er til kjörs skv. 10. gr. laga Eflingar. Um er að ræða formann félagsins og gjaldkera, ásamt sex meðstjórnendum. Þá er einnig gerð tillaga um skipun tveggja skoðunarmanna reikninga ásamt einum varamanni. Listi trúnaðarráðs og uppstillingarnefndar er eftirfarandi: Formaður: Sólveig Anna Jónsdóttir Gjaldkeri: Michael Bragi Whalley Meðstjórnendur: Greta Íris Karlsdóttir Hjördís Bech Ásgeirsdóttir Hlynur Gauti Ómarsson Mary Jane Gonzales Munoz Rögnvaldur Ómar Reynisson Sæþór Benjamín Randalsson Skoðunarmenn reikninga: Aðalmenn: Bozena Bronislawa Raczkowska Valtýr Björn Thors Varamaður: Jóhannes Sævar Soffíuson Öðrum listum ber að skila á skrifstofu félagsins fyrir kl. 12:00 mánudaginn 26. janúar. Fylgja skulu meðmæli 120 félagsmanna.