
Vegna orlofshúsa Eflingar og Covid-19 faraldursins
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Vegna umfjöllunar á vefnum Skessuhorn.is í gær 25. mars 2020 um orlofshúsabyggðir, m.a. í Svignaskarði þar sem Efling og 15 önnur stéttarfélög reka orlofshús, vill Efling koma eftirfarandi á framfæri:
- Landlæknisembættið hefur ekki mælt með lokun orlofshúsabyggða eða sérstökum ráðstöfunum í orlofshúsum umfram það sem þegar er að finna í útgefnum leiðbeiningum embættisins til framlínustarfsmanna í atvinnulífinu. Efling hefur fengið þessar upplýsingar staðfestar af embættinu.
- Orlofssvið Eflingar hefur á síðustu vikum átt samráð við umsjónarmenn í orlofshúsabyggðum. Komist hefur verið að samkomulagi um viðeigandi ráðstafanir til að minnka líkur á smitum vegna umgangs og samneytis við gesti. Mælst hefur verið til þess að enginn samgangur sé milli umsjónarmanna og gesta, sér í lagi við afhendingu lykla, og hafa leiðbeiningar verið gefnar út þessa efnis á þremur tungumálum. Árétting og ítarleiðbeiningar um þrif á þremur tungumálum hafa jafnframt verið settar upp í orlofshúsum.
- Þau orlofshús sem Efling er með í útleigu bjóða ekki upp á að gestir geti verið þar í tveggja vikna samfelldri heimasóttkví, enda ekki hægt að panta húsin í svo langan tíma. Því á það ekki að vera mögulegt fyrir félagsmenn Eflingar að vera í sóttkví í orlofshúsum stéttarfélagsins.

