Verkföll Eflingar í Reykjavíkurborg standa enn yfir

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

09-03-20

deila

Um helgina náðust samningar milli Eflingar og ríkisins. Samningnum fylgir svigrúm til að ná fram sérstakri kjaraleiðréttingu á borð við þá sem Efling hefur krafist gagnvart Reykjavíkurborg. Viðræðum um slíka leiðréttingu og um önnur samningsatriði við Reykjavíkurborg er ekki lokið. Verkfall Eflingar í Reykjavíkurborg heldur því áfram.Verkfall hefst í dag á hádegi meðal félagsmanna Eflingar sem starfa hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur, flestir hjá Kópavogsbæ. Fjöldafundur verður haldinn klukkan hálf eitt í safnaðarheimili Digranesskirkju fyrir félagsmenn sem þá leggja niður störf. Meðal þeirra er fjöldi skólaliða og fólk sem starfar við þrif og viðhald. Yfirmenn starfsstöðva miðla upplýsingum um þau störf sem verða undanþegin verkfallsboðuninni.